31.05.2007 17:16:49 / laufey
Já, það var gaman á Cliff Richard!! En langt er orðið
síðan. Hér hefur tíminn flogið áfram og allir farfuglar
komnir og sumir sem stoppa hér stutt á leið sinni áfram til
Grænlands eru farnir eða að fara. Vorverk eru langt komin en
alltaf bætist eitthvað við. Korni sáð, rýgresi sáð, áburður
komin á túnin. Mikið var samt kalt hérna í maí, núna í dag
kom sárabót og fór hiti í 17-18 gráður. Kálfarnir fóru út á
hvítasunnudag og allar kindur sem eru bornar eru komna út, eru 2
eftir að bera. Nú horfir til betri nettenginga í nánustu
framtíð og bíðum við spennt eftir því. Nú er stutt stund
milli stríða, styttist í fjós.
»