Laufey á Stakkhamri
21.11.2011 23:53:41 / laufey

Netsamband

Það er nú það, hvað er það.....  Eitthvað ofaná brauð?  Nei en það er stopult.  Út og inn um gluggann.  Mamma og pabbi fengu sér 3G netsamband og það er nú ekki allur munur á hraðanum en það er mun stabílla, ég get þó altént farið til þeirra og borgað reikningana. 

Hnéið er allt að koma til, farin að kíkja í fjós, en það þarf að vera í hæfilegum skömmtum samt.  Að ganga stiga er mun betra en ekki alveg eins og það á að vera.  Þetta kemur allt saman, gefa því góðan tíma svo maður verði fær í að ríða út með nýju ári :d 

Kýrnar bera í skorpum og er nú ein skorpan að hefjast, vökunótt sl. nótt og stefnir í aðra vökunótt.  Kýr deyja, láta kálfum, aðrar eiga lifandi efnilegar kvígur og enn aðrar naut sem munu enda sem dýrindis kálfasteikur innan fárra mánaða.

Byggingin hefur legið í dvala lengi vel, spurning um að steypa gólfið í þessum hlýjindum?  Hér hefur eiginlega bara komið ein almennileg frostnótt, en hlýjindi í nóvember hafa verið með eindæmum, þó hefur nú líka blásið hressilega.  Stelpurnar hafa heimsótt leikskólann og eru að verða nokkuð sprækar með það. 

Nú styttist í jólin og hef ég sett á stefnuskána að byrja snemma á því sem tilheyrir því, aldrei að vita hvað mun tefja mann á síðustu metrunum.  Af fenginni reynslu veit ég þó að jólin koma sama hvað á dynur, en það er þó betra að vera búin að pakka inn pökkunum fyrir aðfangadag, (var ekki allveg búin að því fyrir 3 árum síðan þegar mér var kippt snögglega upp í sjúkrabíl fyrir hádegi á aðfangadag).  Þá var ekkert jólabað í boði fyrr en einhverjum dögum síðar með treglega fengnu leyfi.

Í nótt verður skemmtileg vestanátt með éljagangi spennandi8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2011 22:20:37 / laufey

Skítur

Nú er tíminn fyrir skítinn, tæma skal haughúsið fyrir veturinn, þó dugar það alltof stutt.  Davíð er kominn með niðufellingartækið, en reynslan hefur sýnt okkur að niðurfelling á kúamykju að hausti er alger snilld, nýting næringarefna verðu mun betri en ábreiðsla með hefðbundnum tækjum.  Vonum við að nú frysti brátt svo skíturinn geymist þarna og plöntur fari ekki að álpast til að taka upp næringarefnin núna, heldur bíði til vorsins.  Davið er reyndar alger snillingur, endilega að fylgjast með Landanum á næstunni, þeir heimsóttu hann í sl. viku og voru að fylgja honum eftir, en hann er með gervifót frá Össur og er einnig að prófa allar nýjustu týpurnar fyrir þá, þannig að hann er alltaf á nýjum fæti (eða þannig).  Hann klifrar upp á skítatækið og niður aftur með undraverðum hætti.

Það lítur annars ekki vel út með kvíguna sem við héldum að hefði látið úti, það er allt inni í henni ennþá (alger vibbi), Rúnar kom í sína síðustu heimsókn sem praktiserandi héraðsdýralæknir á mánudaginn og leist illa á.  Einnig horfir illa með eina kú sem bar í lok ágúst og náði aldrei upp áti og nyt.  Rúnar fangskoðaði það sem eftir var að fangskoða og var fanghlutfallið ekki gott, ein kvíga hefur einnig látið frá því hún var fangskoðuð í sumar.  En svona er þetta aldrei hægt að ganga að neinu vísu.

Hnéið er allt að koma til eftir að hluti af liðþófa í vinstra hné var fjarlægður fyrir tæpum 3 vikum, fer í endurskoðun (haha) á fimmtudaginn.  Ég myndi nú ekki fara í neinar íþróttaæfingar ennþá, á erfitt með að ganga niður tröppur og upp (upp er þó skárra).  Engar snöggar hreyfingar eða hliðarhreyfingar eru í boði.  En það þarf að gefa þessu tíma til að jafna sig svo maður skemmi ekki meira.  Þannig að ég hef ekki farið í fjós í að verða 3 vikur og er ekki allveg á leiðinni þangað heldur.

Lömbin fóru í slátur í dag og tökum við heim nokkur til okkar brúks.  Óvenjulegt var að það fundust 2 ær með júgurbólgu, þá var nokkrum gömlum slátrað.  Þannig að 7 gimbrar voru settar á sem er með því meira í þessum fjárfjölda hér.

Mér sýnist að okkur blogcentral sé að semja ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.10.2011 23:24:20 / laufey

Sumarið og haustið

Ég gerði tilraun í sumar/haust til að setja hér inn smá efni en það fór einhvernvegin á þann veg að ég og blogcentral vorum ekki alveg að tala sama tungumálið.  Gerði ég þá laaaangt hlé á tilraunum í þá veru.  En hér kemur tilraun nr. 2.

Í sumar brugðum við undir okkur betri fætinum í nokkra daga og ferðuðumst um Vestfirði.  Keyrðum eins og leið lá eftir þjóðvegum inn í Dali og um Reykhólasveitina, alla Barðaströndina og lentum á Patreksfirði hjá móðursystur Þrastar í kvöldmat.  Fengum við frábært veður alla ferðina, frá fyrsta degi til þess síðasta, enda var rigningin ekki að þvælast fyrir þessum landshluta í sumar.  Við keyrðum út á Látrabjarg, stoppuðum í Látravík, kíktum í Örlygshöfn og niður á Rauðasand.  Næsta dag var keyrt út í Ketildali og rennt upp að Uppsölum, listaverkin skoðuð og borðað nesti á Bíldudal, keyrt upp á Dynjandisheiði og niður á Barðaströnd og aftur á Patreksfjörð.  Fjórða daginn keyrðum við sem leið lá yfir á Barðaströnd upp á Dynjandisheiði og eins og vegurinn lá til Ísafjarðar með nestistoppi við Dynjanda.  Þar heilsuðum við upp á Krisján bekkjarbróður Þrastar frá Hvanneyri.  Kíktum út í Bolungarvík.  Fimmta daginn var svo haldið heim.  Í minningunni situr að vegirnir eru hrikalegir oft á tíðum, dáist að fólki sem býr þarna en fegurð landsins er ólýsanlega (að minnsta kosti í góðu veðri).  Finnst það ekki vera spurning um að þvera Þorskafjörð, það þarf bara ekki að ræða það, það er svo augljóst:d  Komst að því að héðan er hægt að fara í dagsferð milli mjalta út á Snæfjallaströnd;)  Öfunda ekki bílstjórann sem þarf að fara niður á Rauðasand að sækja mjólk í vetrarfærð, nóg er um að keyra þarna að sumri til.  Fallegasta staðsetning á tjaldstæði var á Rauðasandi, magnað að vera bara við endalausa gula skeljasandsfjöru og fá stórstraumflóðið í návígi8)

En gott og vel, heyskapur var með seinni skipunum vegna kulda og þurrka.  Spretta á grænfóðri var með eindæmum hæg en náðum einungis einum slætti á blöndunni en höfum undanfarið náð tveim sláttum.  Kornræktin, já ........ var léleg. og er það ekki rætt meir að sinni.

Stelpurnar fengu í sumar hana Valgerði til að leika við, hún var sem sagt að passa þær og gekk það bara vel.  Nú í haust kíktu þær svo í heimsókn í leikskólann og hittu þar Valgerði aftur og urðu miklir fagnaðarfundir :d  Þær voru mjög duglegar á ferðalaginu og þykir bara ágætt að vera í bíl.

Anna kom svo í ágúst og fór í lok september, hún er allveg milljón, og gott að fá hana, henni þykir líka gaman að koma.  Nú er hún að klára sitt nám út í Þýskalandi og þarf væntanlega að leita sér að vinnu á næsta ári.

Við Anna reyndum að ríða út sem við gátum, fram í myrkur meðan veður gaf okkur færi til, einnig komumst við einn dag með Hlíðarfólkinu yfir Kerlingarskarð sem var mjög gaman.

Mamma og pabbi héldu upp á gullbrúðkaup sitt í ágúst og fór öll fjölskyldan í dagsferð (milli mjalta) norður í Asparvík, sem heppnaðist vel.

Kýrnar byrjuðu að bera í ágúst.  Hefur það gengið ágætlega sem af er, einungis 2 kálfar dauðir, annar í erfiðum burði en hinn hjá fyrsta kálfskvígu.  Nú í vikunni settum við kvígurnar inn og komumst að því að ein hafði látið nýlega en hún átti að bera eftir mánuð, skaði þar.

Nú er spurning hvort mér og blogcentral semur?


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.07.2011 23:47:32 / laufey

Klaufsnyrting

Í dag fengu kýrnar klaufsnyrtingu og fóru svo beint út.  Þetta er fyrsti útiverudagurinn í sumar en beðið hefur verið eftir að beitin verði samfelld, það er að eitthvað komi nú upp úr flögunum sem sáð var í til beitar fyrir þær í framhaldi og með beit af ræktuðum túnum.  Guðmundur kemur svo seinna í að fræsa raufir í sléttu gólfin og bitana sem eru hálir.  Þá verður nú eitthvað annað að sjá göngulagið í fjósinu vonandi.

Rigningin kom í gær og vætti aðeins í þó að það hafi ekki mikil áhrif á grunnvatnsstöðu þá breytir þetta miklu fyrir gróðurinn sem rýkur nú af stað.  Nú styttist í að hægt verði að halda áfram heyskap sem er mun seinna á ferðinni en venjulega.  Það er orðið mjög langt síðan fyrri slætti hefur ekki verið lokið fyrir mánaðarmót júní/júlí, líkla var það 198? eitthvað.  Nú er spennandi að sjá hvað restin af sumrinu gerir fyrir kornið sem er nú komið stutt á veg.

 


» 18 hafa sagt sína skoðun

20.06.2011 23:05:56 / laufey

Sláttur hafinn

Í dag var byrjað að slá, sprettan er svo sem ekki neitt óskapleg.  Byrjað er að venju á heimatúninu en kýrnar eiga að fá beit þar þegar þær fara út.  Uppistaðan í grastegundum er háliðagras sem skreið í byrjun júní.  Þetta er hæfilegur fjöldi hektara til að prófa tækin á.  Reyndar sprakk á rakstrarvélini þegar hún var sótt upp að Hjarðarfelli svo það þarf að byrja á að bjarga því.  Rúlluvélin/samstæðan á að vera í standi (vonandi8)).

Í dag fórum við í heljarinnar leiðangur um nesið, bleyjur voru orðnar af skornum skammti svo það þurfti að bregða sér í búð, fyrir valinu varð Grundarfjörður og svo var ferðinni heitið áfram út á Rif og verlsaður fínn fiskur fyrir sumarið. 

Tvær fyrsta kálfskvígur fóru í morgun, önnur var hundleiðinleg í mjöltum og hin varð glyðsa á sléttu stéttinni og náði sér ekki (hefði líklega ekki gerst ef búið væri að fræsa stéttina).  Einnig fóru 4 hálfsársnautkálfar sem er dýrindiskjöt, tveir þeirra eru óseldir svo ef einhver hefur áhuga má endilega hafa samband:d

Það merkilega var að á heimleiðinni sá ég að verið var að raka saman heyi á Kálfárvöllum, en norðanfjalls er mjöööög langt í slátt, þar er gróður langt á eftir því sem gerist sunnan fjalls.

Ilmurinn af nýslegnu grasi mun streyma inn um gluggann í nótt :)


» 20 hafa sagt sína skoðun

16.06.2011 23:53:54 / laufey

Brák farin

:cry:

Brák fór sína síðustu ferð á þriðjudaginn, fékk fallþungann í dag og var hann 319 kg sem þýðir ca 640 kg lífþungi (en það vantaði hausinn og horninn).  Hún var heldur ekki neitt smásmíði.  Með henni í ferðina fóru ein kvíga ( sem festi ekki fang) og var fallþunginn á henni 307 kg, Brúða sem var orðin öldruð (fallþungi 264 kg), Rák (Brákardóttir) fallþungi 212 kg (júgurbólga), og tvær til viðbótar sem voru búnar að eiga 2 kálfa og voru aðeins of þungar í mjöltum fyrir okkar smekk, fallþungi 223 kg og 234 kg.  Þetta voru allt mjög stórir gripir þó að Brák og kvígan hafi borið af.

Brá mér til Reykjavíkur í dag þar sem ég hitti bæklunarlækni út af hnénu, en það er sprunginn/rifinn liðþófi í vinstra hné sem þarnast lagfæringar.  Pantaði tíma í október, en það þýðir að vera frá erfiðsivinnu í 3-4 vikur og léttri vinnu í 1 viku.  En vonandi get ég svo farið að hlaupa einhverntíman aftur:o

Veðrið í Reykjavík var nú dálítið hlýrra en hér, og bar gróðurinn þess glöggt merki og sást að úthagi var mun lengra komin þarna en hér.

Í fyrradag rákum við kindurnar úr túninu og komu þá fram 2 móðurlaus lömb sem nú eru orðnir heimalningar.  Þau voru fljót að læra að drekka úr pela og koma núna hlaupandi.

Á mánudaginn fór ég með Gust og Þyt á Hestaþing Snæfellings, vorum við að leika okkur í B flokki og A flokki.  Þetta var hið skemmtilegasta í alla staði.  Fengum við minna keppnisvön og byrjendur að keppa okkar á milli og létum meira reynda um að vera "pro"!  Um að gera að taka þátt í svona og hafa gaman af:d

 


» 19 hafa sagt sína skoðun

03.06.2011 23:24:41 / laufey

Og enn er kalt

Það gengur hægt að hlýna, túnin standa í stað þó rigningin hafi aðeins komið gróðrinum til að lifna við.  Háliðagrasið er skriðið en það er mjög lágvaxið.  Kindurnar eru komnar út með lömbin.  Álftirnar eru reyndar þaulsetnar á túnunum, margæsin er þó farin, rauðbrystingurinn sést ekki fljúga í þessum kulda.  Kartöflurnar komnar niður.  Búin að fara nokkrar ferðir fram í nes að ná í svartbaksegg.  Sá í síðustu ferð að kollan er farin að verpa og þá er spurning um að kíkja fram í Hólma :)

» 18 hafa sagt sína skoðun

19.05.2011 22:08:02 / laufey

Kuldaboli

Veðrið hefur nú farið misvel með okkur í maí, bæði óvenju hlýtt og svo núna nístir kuldinn inn að beini.  Áburður fór á túnin 8. maí og búið er að sá í 25 ha af korni.  Önnur jarðvinnsla bíður þar til hlýnar.  Kindurnar tóku sig til við að bera um leið og jarðvinnsla stóð sem hæst svo sumir sváfu ekkert um tíma og aðrir lítið.  Kindurnar hafa verið nokkuð frjósamar, aðeins ein einlembd (hyrnd) en hinar (kollóttu) tví- og þrílembdar.  Þær eru nú ennþá inni og fara ekki út fyrr en hlýnar.  Þrengt var að hestunum, eða þeim hent út í nokkra daga, en fengu að koma inn í dag þar sem norðangarrinn hefði feykt heyinu þeirra út í buskann. 

Já Lýsa stendur sig enn sem afurðahæsta kýrin á landinu s.l. 12 mánuði en það er nú minnkandi í henni.  Dögg er nú yfir 40 kg í dagsnyt. 

Pabbi er kominn heim úr hnjáliðskiptum á Akureyir og er byrjaður í sjúkraþjálfun inní Stykkishólmi. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2011 23:03:37 / laufey

Hvalreki

Um helgina uppgötvuðum við hvalreka hér í fjörunni.  Líklegast er um að ræða ca 9 metra langan búrhval.  Árið 1984 rak hér um 20 metra langan búrhval, síðan hafa örfári komið hingað en skolað út aftur.  Nú er spurning um hversu lengi þessi fær að vera í fjörunni.  Við kíktum í gær og tókum myndir en þar sem ég er óttalega léleg í að setja myndir hér inn þá eru tvær á fésbókinni hjá mér. 

Hér hafa farfuglarnir komið í stríðum straum og á ég eftir að sjá kríuna, spóann (hann er eflaust framm í nesi), en kjóann þóttist ég hafa séð í gær.  Rauðbrystingurinn er kominn í hópum og bíður eftir að korninu verði sáð.

Burður í fjósinu er búinn þar til í ágúst og munu þær hverfa í geldstöðu eða á Selfoss héðan af framm á sumar.

Búið er að keyra skít af miklum móð, plægja hér fyrir neðan og byrjað upp í flóa.  Bleytan er full mikil til að hægt sé að sá að viti en það mun vonandi skána.

Sauðburður verður svo upp úr miðjum maí.


» 20 hafa sagt sína skoðun

12.04.2011 23:42:47 / laufey

Lýsa hörkutól

Lýsa er nú afurðahæsta kýrin sl. 12 mánuði yfir landið skv. skýrsluhaldi Bændasamtaka Íslands.  Hún er með 12.424 kg mjólkur í ársnyt.  Hún átti að bera núna eftir áramót en þegar hún átti að fara að geldast þá lét hún tvíkelfingum undan Síríusi.  Hún stálmaði aðeins þá og nytin minnkaði en svo jókst nytin aftur en hefur nú farið minnkandi og fær hún ekkert kjarnfóður lengur (komin undir 25 kg í dagsnyt), en "heilfóðurblandan" á að duga að 25 kg nyt.  Í fyrra var tekið á nautastöðina naut undan henni og Síríusi sem verður spennandi að fylgjast með.  Lýsa er sem sagt undan honum Frísk og man ég að þegar Jón Viðar dæmdi hana sem kvígu leist honum mjög vel á hana, ekki svo galið hjá honum 8)

Hér eru fuglarnir að hópast að, Lóan komin í hópum, stelkurinn kominn, hettumávurinn sást frammi á fjörum.  Svo er langt síðan gæsin sást og álftin fór aldrei, endurnar fóru held ég ekki heldur.  Nú er spennandi að komast í næsta könnunarleiðangur niður að sjó og sjá hvaða fuglar eru þar.  Svo styttist í að svartbakurinn verpi, nammi namm;)

Síðasti fundur vetrarins var á föstudaginn, aðalfundur Auðhumlu í Dalabúð, skoðuðum við samlagið þar, en þar eru desertostar í fyrirrúmi ásamt LGG og fleriu.  Í tilefni þess keypti ég Gullost síðast í kaupstaðarferð:o

Nú fara vorverkin að bresta á og er gerð spírunarprófun á kornfræjum úti í glugga, á korni frá í fyrra og hitteðfyrra.

Svo er að koma skattaskýrslunni frá:cry:


» 19 hafa sagt sína skoðun

05.04.2011 22:19:59 / laufey

Knapamerki 3 komið í höfn!

Á sunnudaginn þreyttum við próf í knapamerkjum 3 í Söðulsholti.  Við vorum 8 talsins sem höfum stundað námið í vetur hjá Birnu Tryggvadóttur, en hún eignaðist stelpu í lok febrúar, Ylvu Sól, svona milli námskeiða hjá okkur:)  Við tókum lágmarkstímafjölda sem var nú heldur knappt en með harðfylgi náðu allir prófinu, sem verður að teljast frábært:d  Gustur þreytti prófið með mér og hefur hann mikið bætt sig í vetur (og jú ég líka mig sjálfa) en hann var stirður sem spýta í janúar enda lítið verið hreyfður síðan sumar 2008.  VIð höfum mikið stundað liðkandi æfingar til að bæta stökkið á hringnum sem skilaði okkur góðri einkunn þar.  Mesti taugastrekkingurinn var þó stígandi brokk, ná að byrja að stíga veikari skástæðuna upp af feti og svo að skipt örugglega um skástæðu í X 8|  Það slapp allt saman til og náðum við ágætisprófi, þó að við hefðum alltaf getað gert betur8).  Í tilefni dagsins var Gusti umbunað með því að hlaupa fram í Hólma í vorveðrinu á yfirferðarbrokki, tölti og hvínandi stökki við mikinn fögnuð:haha:  Þar heyrðum við í hettumávnum, sáum ungan örn, svartbak ásamt fuglum sem hafa verið hér í vetur eins og álft, öndum og gæsin hefur komið hérna í könnunarleiðangra en er komin í hópum hingað núna.  Í dag þóttist Þröstur heyra í Lóunni:!:  Það styttist óðum í að vorverkin geti hafist af alvöru, en skítur hefur farið út hér í slumpum undanfarið.
Nú er að bóka dagana sem farfuglarnir koma.
Hjá stelpunum standa yfir æfingar í að þekkja A og B en skór og föt eru merkt þannig og neitar Bjarndís að fara í föt eða skó nema þar standi B einhversstaðar8|.

» 18 hafa sagt sína skoðun

30.03.2011 15:25:27 / laufey

Fundir, fundir

Fundamánuðurinn er mars (jú og partur af febrúar og apríl).  Deildarfundir og fundir aðildarfélaga eru oft í febrúar og aðalfundir á landsvísu í lok mars byrjun apríl.  Um síðastliðna helgi var aðalfundur LK (Landssamband kúabænda) haldinn á Akureyri.  Þangað stormuðum við öll og lögðum í hann á fimmtudegi eftir hádegi.  Stelpurnar sváfu alla leið í Húnavatnssýslurnar og voru ekkert farnar að kvarta í Skagafirðinum en það varð nú samt úr að stoppa þar í heimahúsi og hlaupa úr sér.  Náðum kvöldmat á seinni skipunum á Akureyri.  Fundurinn stóð yfir í 2 daga, byrjaði kl. 10 á föstudegi og lauk að ganga 7 á laugardegi.  Merkilegt hvað maður getur orðið þreyttur á að sitja8)  Heim var svo haldið á sunnudegi eftir hádegi og náð í kvöldfjós.  Stelpurnar nældu sér í smá kvef og voru með hita á sunnudagskvöldið. 
Á mánudag fækkaði í fjósinu þar sem 4 kýr fóru í ferðalag á Selfoss, ásamt 2 hálfsárs nautkálfum.  Þá á ein eftir að bera nú í apríl og þá er pása þar til í ágúst.
Þoka hefur legið hér yfir þar til í dag (sólin skein pínu í gær) sem veldur því að netsamband verður mjög takmarkað, lá við að ekki væri hægt að borga reikninga í heimabanka, varð ég að bregða mér til mömmu og pabba þar sem þau eru með örugga (eða stundum) hæggenga ISDN plús nettengingu.
Já og tjaldurinn var örugglega að tísta í læknum í gærkvöldi8) sem sagt vorið er að koma.

» 13 hafa sagt sína skoðun

12.03.2011 22:23:38 / laufey

Dagurinn í gær

Var langur.  Fórum við í fjósið kl. 6 þar sem fyrir lá að ferðast til Reykjavíkur og kveðja frænku mína Katrínu Kolku.  Áætlun stóðst, renndum við úr hlaði kl. 9 og héldum beina leið suður til Reykjavíkur.  Reyndar stoppuðum við í Mosfellsbænum og skildum mömmu og pabba eftir hjá Sigrúnu.  Alexandra Ásta og Bjarndís Erla sofnuðu ekki á leiðinni suður, en þær fóru í Hafnarfjörðinn þar sem Erla Óskars tók við þeim.  Hafði hún það verkefni að passa þær þann daginn.  Það var nokkuð létt verk þar sem fyrir lá að gefa þeim að borða og koma þeim í vagninn og að sofa, sváfu þær svo lengi dags.  Jarðsungið var frá Hallgrímskirkju kl. 13 og mættum við í krikjuna um hálf eitt.  Athöfnin var einstaklega falleg og sendi sólin geisla sína í gegnum gluggana á einkar táknrænan hátt.  Tónlistin hljómaði sérstaklega fallega í þessari kirkju en þar er alger óþarfi að vera með mikrafón, ómurinn er ótrúlegur.  Ég fór að leita að litlum mikum á félögum úr karlakórnum Heimi því söngurinn hljómaði svo vel, en röddin í þeim er undursamleg.  Katrín var að vinna á vökudeildinni fyrir rúmum 2 árum, en rétt áður en við mæðgur komum þar inn greindist hún með krabbamein.  Við hittum hana nokkrum sinnum þarna inni þar sem hún kom og sat hjá lillunum og hvíldi sig þegar hún kom úr meðferð. Hún var að vinna að lokaritgerðinni í hjúkrunarnáminu sínu sem fjallaði um fyrirbura.  Gaman væri að lesa þá ritgerð.  Við þökkum henni kærlega fyrir þær stundir sem hún átti með lillunum á vöku.  Án efa hefði vökudeildinn fengið góðan liðsmann í Katrínu.  Heim komum við svo að verða 9 um kvöldið en þá tóku við mjaltir og kvöldmatartími og háttatími tátanna.  Rétt undir miðnætti var svo verkum lokið.  Þegar ég kom úr fjósinu voru norðurljósin í miklum ham á himninum táknrænn endir á fallegum en köldum degi.

» 19 hafa sagt sína skoðun

05.03.2011 22:05:07 / laufey

Gæsir á flugi

Í vikunni sást til fjögurra gæsa á flugi hér, þær eru heldur snemma á ferðinni þetta árið en vor hefur verið í lofti undanfarið.  Í dag var þó lítið um vor í lofti, en það voru ýmsar útgáfur af úrkomu og var lognið mismikið að flýta sér.  Við skruppum ínn í Hólm að versla og var vægast sagt bálhvasst að norðanverðu á heimleiðinni.  Náðum við í vistir fyrir sprengidag og bolludag svo nú verður gaman:haha:
Í huga okkar þessa dagana er ofarlega andlát Katrínar frænku sem lést fyrir viku síðan eftir tveggja ára baráttu við karabbamein.  Við hittum hana nokkrum sinnum á vökudeildinni fyrir 2 árum, en hún sat þar hjá stelpunum stundum þegar hún vara að koma úr meðferð.  Hún var að klára hjúkrunarfræði og var hennar lokaritgerð um fyrirbura.  Án efa hefði hún verið góður liðsmaður vökudeildarinnar.  Þökkum við henni kærlega fyrir kynnin þar.
Stelpurnar eru hinar sprækustu og eflast alltaf með hverjum degi, tala alltaf meir í dag en í gær.  Þær hafa þó engan minnsta áhuga á koppasetu, en það hlýtur að koma.  Alexandra reyndar harðneitar að pissa á gólfið vill fá bleyju til að pissa í8) en Bjarndís lætur frekar vaða.  Úti fara þær sínar leiðir sem er oft í sitt hvora áttina eða þá að önnur dundar meðan hin þarf að arka eitthvað út í buskann.
Nú fer næsta burðarlota að hefjast sem verður sú síðasta á þessum vetri.  Nokkrar kvígur eiga að bera nú í mars.
Um daginn fórum við pabbi að eiga við tryppin og gekk vel að eiga við Sporð en hægar við brúnu merina.  Nú hefur verið stutt hlé frá þeim tamningum sem munu hefjast aftur von bráðar.
Gott og vel að sinni.

» 12 hafa sagt sína skoðun

12.02.2011 23:56:51 / laufey

Gobbedí gobb

Knapamerkisnámskeið í Söðulsholti fór af stað aftur í janúar en núna er smá pása fram yfir miðjan mars þar sem kennarinn ætlar að verða léttari:) Nú þarf ég að vera dugleg að æfa mig á honum Gusti en ákveðið var að taka hann í prófið frekar en Þyt þar sem Gustur átti auðveldara með stökk upp á báðar hliðar en Þytur.  Gustur þarf reyndar að liðka sig mikið en hann hefur lítið verið notaður síðan 2008.  Eru baugar, framfótasnúningar, krossgangur og fleiri liðkunaræfingar notaðar, þá má ekki gleyma frjálsum útreiðartúr til að halda geðheilsunni hjá báðum aðilum 8)
Í dag voru gerðar nokkrar liðkandi æfingar inni og fengu Alexandra Ásta og Bjarndís Erla að skreppa á bak og fara einn hring inni og voru þær kátar með það:d  Tókum við svo Sporð í smá kennslustund en hann er á 4. vetur og þarf að kynnast alvöru lífsins.  Hann lítur mjög vel út og mun vonandi gera það einnig undir manni.
Eftir helgina munu 5 kýr fara á Selfoss, líkast til verða það Tönn (sem er 1. kálfskvíga fastmjólka og leiðinleg), Lovísa sem festir ekki fang ásamt Grímu, Sól sem var til vandræða með júgurbólgu, og að lokum hún Hryðja (sem Anna átti svo erfitt með að bera fram, ímyndið ykkur Þjóðverja segja þetta sem getur ekki sagt íslensk r :haha: Seinna meir fer svo Brák með fallegu hornin sín og einhverjar fleiri.
Alexandra Ásta og Bjarndís Erla horfðu hugfangnar á söngvakeppnina og klappaði Alexandra Ásta eftir hver lag svo við urðum að kjósa ansi mörg:lol:  Þær eiga það til að fara í skúffuna sem straujárnið er og taka leiðsluna og syngja í klóna hástöfum, þó þær hafi ekki enn trompað sönginn á afmælisdaginn sinn :haha:  Spurning um hvenær þær fái singstar?

» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Heimsóknir
Í dag:  560  Alls: 162969